Árið 2026 eru 90 ár liðin frá því að fyrstu heildstæðu lögin um almannatryggingar voru sett á Íslandi í formi alþýðutryggingalaganna 1936. Þetta var stórt skref hjá fámennri þjóð og stórt stökk tekið í áttina að því velferðarsamfélagi sem við nú þekkjum. Mikilvægi þessa öryggisnets fer ekki fram hjá neinum enda er nánast hægt að fullyrða að á einum eða öðrum tímapunkti í lífinu nýtur hver einasti íbúi góðs af almannatryggingakerfinu í einhverri mynd.
Fræðsluefni um velferð og almannatryggingar sem er fyrir nemendur í framhaldsskólum.
Innslög frá ráðstefnu sem varpa ljósi á þróun almannatrygginga í 90 ár.